28.5.2010 | 09:22
Stærðfræði
Ég er búin að vera í hringekju í stærðfræði núna þessa önn. Mér fannst það skemmtilegt nema hvað að oft komu sömu verkefni marga tíma í röð.
Það sem mér fannst jákvætt var að við þurftum ekki alltaf að vera að gera það sama í Stærðfræði og þetta var mikil tilbreyting frá því að vera í stofunni að vinna alltaf bara í Geisla.
En það sem mér fannst neikvætt var að þetta var ekki nógu fjölbreytt og við hefðum alveg eins bara getað skipt um verkefni í stofunum því við vorum hvort sem er alltaf með sömu krökkunum.
Kv. Lísa Margrét
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 09:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.